U p p l ý s i
n g a r u m f j a l l g ö n g u k l ú b b i n n
T O P P F A R A :
Stofnun og sagan frá upphafi... hvað það er langt síðan...
Fjallgönguklúbburinn Toppfarar var stofnaður af Báru Agnesi
Ketilsdóttir og Erni Gunnarssyni, þann 15. maí 2007 og fór mjög vel
af stað frá upphafi en fyrstu fimm mánuðina var klúbburinn
starfræktur innan World Class í umsjón Báru.
|
|
|
Hugmyndafræði... fjallgöngur eru flott líkamsrækt... Útivera og hreyfing er mikilvæg auðlind til heilsubótar fyrir jafnt heilbrigða einstaklinga sem og þá sem eiga við heilsufarsvandamál að stríða. Litið er svo á að með markvissri ástundun fjallgangna auki viðkomandi bæði styrk og þol og næri ekki síður anda og sál með fegurð óbyggðanna og sigri áskorana þar sem uppskeran er bætt andleg sem líkamleg vellíðan og aukið sjálfstraust til þess að stunda útiveru utan alfaraleiða, jafnvel á eigin vegum. Útivistarsvæðin kringum höfuðborgina eru vannýtt auðlind sem vert er nýta til markvissrar heilsuræktar og jafnvel sem hluta af skipulagðri meðferð við ýmsum heilsufarsvandamálum, enda er löngu sannað að hreyfing og útivera er "allra meina bót".
|
||
Markmið... lífsstíll til framtíðar... Markmið klúbbsins er að koma þátttakendum á bragðið með að nota útiveru og hreyfingu sem markvissa heilsurækt allt árið um kring og gera fjallgöngur að lífsstíl sem séu stundaðar reglulega í stað eða til viðbótar hefðbundinni líkamsrækt. Innan klúbbsins haldist góður hópur sem geri fjallgöngur að reglulegri líkamsrækt allt árið um kring og láti hvorki veður né annað aftra sér í að taka æfngu með því að fara reglulega út fyrir borgina og ganga í óbyggðum. Þá er ætlunin að aðstoða þá sem þess þurfa að beita útiveru og hreyfingu sem markvissu meðferðarformi við ýmsum heilsufarsvandamálum, en fjallgöngur eru tilvalin leið til þess þar sem ástundun og uppskera erfiðisins er árangurshvetjandi.
|
||
Starfsemi...
við gefum aldrei eftir... Klúbburinn er starfræktur allt árið um kring á vikulegum æfingum með fjallgöngum á nágrannafjöll höfuðborgarsvæðisins og fjallgöngum þriðja hvern laugardag þar sem gengið er á hærri tinda og safnað fjöllum. Vikulegar æfingar undir stjórn þjálfara eru allt árið alla þriðjudaga kl. 17:30. Fjallgönguæfingar á þriðjudagskvöldum eru allt árið um kring óháð veðri og falla æfingar almennt ekki niður vegna veðurs, heldur er seglum hagað eftir vindi hverju sinni og farið annað eða styttra en áætlað var, nema veðrið geri okkur það algerlega ómögulegt að fara út, en það hefur gerst örfáum sinnum öll þessi ár.
Þátttökuskilyrði... komdu með... Þátttökuskilyrði eru skrifleg skráning í klúbbinn og greiðsla æfingagjalda auk þess sem með þátttöku skuldbinda menn sig til að auðsýna ábyrgð gagnvart sjálfum sér, öðrum þátttakendum og umhverfinu, með því að fara samviskusamlega eftir útbúnaðarlistanum á vefsíðunni eftir atvikum, sýna samheldni innan hópsins og umgangast náttúruna af virðingu og aðgætni.
Fararstjórn... ekkert stress... Örn leiðir göngurnar og Bára fylgir síðasta manni innan skynsamlegra marka. Hópurinn er þéttur reglulega og lögð er áhersla á að öllum líði vel og allir fái að njóta sín eins og hægt er. Séu menn í vafa með líkamlegt form, búnað eða annað, er velkomið að ráðfæra sig við þjálfa á æfingum eða gegnum síma/tölvupóst. Þjálfarar taka sér fasta hvíld tvisvar á ári; í 5-6 vikur yfir sumarið og 1-2 vikur að vetri til, en þá eru skipulagðar göngur á vegum klúbbmeðlima sem hafa alltaf verið mjög vel heppnaðar.
|
||
Erfiðleikastig... það er gaman að ögra sér... Þriðjudagsgöngurnar eru misjafnar
að erfiðleikastigi eins og fram kemur í tilkynningu hverrar göngu og
er tekið sérstaklega fram ef gangan er eingöngu fyrir þá sem eru í
mjög góðu formi, en almennt eru göngurnar fyrir öll getustig og
allir velkomnir með.
|
||
Ábyrgð...
vöndum okkur... Þátttaka í fjallgönguklúbbnum er alfarið á ábyrgð hvers og eins. Þátttakendur eru ekki tryggðir á æfingum né í fjallgöngum og er það í samræmi við venju varðandi fjallgöngur, þjálfun og útivist hvers konar. Bent er á tryggingafélögin í þessu sambandi. Þjálfarar leggja áherzlu á að tefla aldrei í tvísýnu og meta vel aðstæður hverju sinni, þeir leiða og reka hverja æfingu fyrir sig með því að fylgja fyrsta og síðasta manni en þó innan skynsamlegra marka þar sem þeir bera skyldur til hópsins í heild. Bent skal á að þeir sem ekki fylgja þjálfara (fara á undan eða út af gönguleið) eru ekki undir umsjón eða ábyrgð þeirra varðandi rötun eða annað og er ætlast til þess að meðlimir virði leiðarval og þann hraða sem þjálfarar leggja upp með hverju sinni.
Þjálfun... er til hreinni líkamsrækt en fjallgöngur...? Við þjálfum líkamann undir þá
áreynslu að ganga á fjöll, með því að styrkja smám saman taugakerfi,
lungu, hjarta- og æðakerfi og síðast en ekki síst stoðkerfi. Við
þjálfum
hugann og þ. m. t. sjálfstraustið með því að ganga á fjöll og komast
að því að fjallganga er yfirstíganleg öllum við viðhlítandi heilsu
og hreint og tært ævintýri þeim sem leggja í hann... Við þjálfum með hverjum og einum þau vinnubrögð og aga sem farsælust eru í fjallgöngum eins og að sýna yfirvegun og skynsemi, hafa vaðið fyrir neðan sig, gæta að öryggi, meta aðstæður rétt, læra á sjálfan sig, vinna saman, sýna tillitssemi, sveigjanleika og samheldni gagnvart göngufélögum, ganga undantekningarlaust vel um óbyggðirnar, bera virðingu fyrir umhverfinu o. s. frv. Þá er reglulega farið í tæknileg atriði varðandi fjallamennsku í tindferðum eða á námskeiðum sem þjálfarar útvega þar sem farið er í þætti eins og notkun brodda og ísaxar, sprungubjörgun á jökli, mat á snjóflóðahættu, rötun með notkun áttavita og gps o. s. frv.
|
||
Fjallasafnarar...
við getum ekki hætt að safna... Klúbburinn vinnur út frá því markmiði að "safna fjöllum" með því að æfa sig á fjöllunum í kringum höfuðborgarsvæðið og fara lengri ferðir á hærri fjöll. Hver og einn meðlimur setur sér persónuleg markmið og byggir upp sitt "fjallasafn", en fjallgönguklúbburinn í heild safnar í sarpinn allt árið. Safnið er skráð skilmerkilega á vefsíðunni í máli og myndum og skorað er á alla Toppfara að taka þátt frá upphafi og láta ekkert fjall framhjá sér fara...
Kortlagning... botnlausir möguleikar... Við setjum okkur þau langtímamarkmið að ganga á hvert fjall sem sést ofan af þeim fjöllum sem við göngum hvert sinn. Þannig er komandi verkefnum úthlutað myndrænt og ósjálfrátt og við kortleggjum landið smám saman með eigin fótum og vitum. Þetta er ævilangt verkefni og meira en það, en þess vert að einsetja sér það, þar sem jafn gaman er að hafa fjöllin framundan eins og að baki!
Undanfarar... könnum ókunn lönd... Frá upphafi hefur það verið stefna þjálfara að takast á við fjöll sem ekki eru til miklar upplýsingar um og velja leiðir um þekkt fjöll sem ekki hafa verið farnar áður. Þeir hafa þá jafnan kynnst sér leiðirnar sjálfir með könnunarleiðangri áður en farið er með hópinn en hin síðari ár notið þess að fara þessa könnunarleiðangra með hópnum eftir að hafa legið yfir kortum og því lesefni ef það gefst á veraldarvefnum um svæðið. Það er auðvelt að þekkja mjög vel til nokkurra gönguleiða á Íslandi og fara ítrekað með fólk þar um og eins er fremur einfalt að bjóða upp á göngur yfir sumartímann á Íslandi þegar allt er með manni, veðrið, færið og birtan...
...
en allt annað mál og langtum meira krefjandi að vera sífellt að
bjóða upp á nýjar gönguleiðir sem ekki er búið að slípa til í
nokkrum skiptum, í ólíkum veðrum á mismunandi árstíðum, jafnt myrkri
sem dagsbirtu, í alls kyns göngufæri.
Hrein og tær fjallamennska felur einmitt þetta í sér að okkar mati... að fara sífellt nýjar slóðir og kynnast ókunnum stigum... að njóta sælunnar við að fara um slóðir sem maður hefur ekki kynnst áður enda hefur það verið eitt aðalsmerkja þessa klúbbs frá upphafi og sérstaða sem við viljum áfram vera í fararbroddi með.
Óhöpp og slys... drögum lærdóm og gerum betur... Líkur á minniháttar óhöppum og jafnvel alvarlegum slysum eru raunverulega til staðar við ástundun fjallgangna almennt. Varðandi Toppfara þá aukast tölfræðilegar líkur á óhöppum verulega þegar gengið er 1 - 2 svar sinnum í viku á fjall allt árið um kring þar sem hópurinn er að fara tæplega 70 fjallgöngur á ári. Hópurinn þarf því að vera undir það búinn að allt geti gerst í fjallgöngum og vinna sem einn maður að því að koma í veg fyrir hvers kyns óhöpp með því að búa sig alltaf vel, nærast vel fyrir og í göngu, fara varlega, hlýta alltaf tilsögn þjálfara, láta strax vita ef vandamál er til staðar, vera í takt við hópinn, gæta að næsta manni, standa sem einn maður þegar óhapp verður og læra af reynslunni... Átakanleg reynsla hópsins á Skessuhorni í mars 2008 undir leiðsögn Íslenskra fjallaleiðsögumanna sýndi vel og sannaði hversu sterkur þessi hópur er því af öllum ofangreindum atriðum stóðu menn sig aðdáunarvert vel þegar á reyndi. Við stefnum staðfastlega að því að hópurinn muni aldrei lenda í slíkum aðstæðum aftur, en það er nokkuð ljóst að minniháttar óhöpp eru fylgifiskur fjallgangna þrátt fyrir einlægan ásetning um að ekkert komi nokkurn tíma fyrir í fjallgöngunum okkar. Þjálfarinn sem þetta skrifar hefur fjórum sinnum dottið illilega á hlaupum síðustu tíu ár þar sem hún hefur átt í slæmum áverkum í nokkrar vikur á eftir og sumum sem aldrei gróa alveg, en það hefur aldrei stöðvað mann í íþróttinni heldur reynir maður að læra af reynslunni, koma í veg fyrir að detta aftur og nýtur þess að stunda útivistina af öllu hjarta :-)
Börn og unglingar... eru hjartanlega velkomin... Þátttakendum er leyfilegt að taka gjaldfrjálst með sér börn og unglinga ef viðkomandi treystir fullkomlega á getu og vilja þeirra, en þau eru algjörlega á ábyrgð viðkomandi. Litið er svo á að útivera eins og fjallgöngur séu fjölskylduvæn heilsurækt og því eru þeir hvattir sem vilja, til að virkja fjölskylduna og taka jafnvel bara hluta af fjallgönguæfingunni eftir því sem hentar. Flestar gönguleiðir eru áfangaskiptar og einfalt að snúa við á eigin vegum ef ekki er farið alla leið en nauðsynlegt er að ráðfæra sig við þjálfara í þessu sambandi. Hundar... gefa okkur svo mikið með fölskvalausri gleði sinni...
Hundar eru leyfðir í fjallgönguklúbbnum enda höfum við haft mikla ánægju af félagsskap þeirra og bundist þeim sem lengst hafa verið með okkur afar sterkum böndum. Að okkar mati erum við mannskepnan komin ansi langt frá náttúrunni ef við getum ekki notið útiverunnar á fjöllum í ærslaflullum félagsskap ferfætlinganna og einmitt leyft þeim að smita okkur af óbilandi ástríðunni og gleðinni sem þeir auðsýna þegar þeir fá að fara í göngu með okkur í óbyggðunum :-)
Reglur varðarndi hundahald í Toppförum er eftirfarandi: 1. Vera vakandi
fyrir því hvort hundurinn er órólegur eða að trufla göngumenn og
setja hann þá í band. 7. Þeir hundar sem eru búnir að vera lengst í fjallgönguklúbbnum virðast "hæstir í virðingarstiganum" og þegar nýrri hundar mæta á staðinn þurfa þeir að læra hvar þeirra staður er. Gott er því að allir séu meðvitaðir um að þegar mætt er í göngu er gjarnan smá galsi í hundunum í byrjun og oft er það útkljáð með gelti og eltingarleik. Bent hefur verið á að þá ætti einmitt að hafa þá í bandi en hundaeigendur telja að það framlengi æsinginn þar sem þeir verða að "raða sér" fyrir gönguna. Endilega sendið mér fleiri ábendingar til að jafnræðis sé gætt og allar hliðar séu með :-)
Félagslíf... dásamlegir vinir gegnum þykkt og þunnt... Almennt séð hafa skapast eftirfarandi hefðir en þetta er alltaf eitthvað breytilegt milli ára: *Fjallamennskunámskeið árlega að
voru eða hausti eftir þörfum.
Gleði, þakkæti og vinsemd eru aðalsmerki þessa klúbbs og þjálfarar eru fyrir löngu búnir að sjá af reynslunni að enginn endist á fjöllum nema tileinka sér þessa þætti öllum stundum ;-) Ómetanleg vinátta hefur skapast innan klúbbsins og það er okkar reynsla að með því að takast á við krefjandi verkefni og fjallgöngur þar sem reynt er á mann til hins ítrasta, skapist sterk tengls milli manna sem slitna ekki svo glatt þó menn hittist jafnvel ekki árum saman.
Vefsíður:... við viljum skrásetja vel alla okkar sögu... Þjálfarar halda úti víðlesinni og
lifandi vefsíðu sem heldur utan um alla starfsemi
fjallgönguklúbbsins
www.toppfarar.is =
www.fjallgongur.is og er Bára með umjón með henni.
Þá er klúbburinn með lokaðan hóp á Fésbókinni þar sem samskipti fara fram innan hópsins gegnum netið og menn deila myndum, skoðunum og áætlunum um aukagöngur sem klúbbmeðlimir flauta jafnan til á eigin vegum. Að ósk klúbbmeðlima er þessi grúppa lokuð öllum nema virkum klúbbmeðlimum þar sem sterkur vinskapur hefur skapast innan hópsins og skilaboð og umræður á persónulegri nótum hin síðustu ár auk þess sem það einfaldar allt skipulag fyrir alla að sjá hverjir eru virkir í klúbbnum hverju sinni. Af þeim sökum höfum við og stofnað fésbókarsíðuna Toppfarar.is sem heldur úti fréttum af göngum klúbbsins í hverri viku, en þar geta þeir sem ekki eru virkir klúbbmeðlimir fylgst með starfseminni og lagt orð í belg en hún verður hugsanlega á ensku að ósk erlendra félaga okkar. Þá höldum við úti Toppfarasíðu á ensku á Twitter þar sem allar ljósmyndir fara frá Instagram.
Farið er árlega eða annað hvert ár í fjallgöngu erlendis en nú árið 2019 eru að baki sex ferðir; níu daga ferð um fjallahringinn kringum Mont Blanc 12.-20 september 2008 sem heppnaðist með eindæmum vel... 23 daga ferð til Perú í mars og apríl 2011 sem var stórbrotið og ógleymanlegt ævintýri... einstök vikulöng klöngurferð í Slóveníu í september 2012 í mögnuðum Ölpum Austur-Evrópu... 18 daga ferð til Nepal þar sem gengið var í Grunnbúðir Everest í október 2014 og upp á fjallið Kala Pattar í kyngimögnuðum Himalayafjöllunum innan um hæstu fjöll í heimi... dísætur sigur á hæsta fjalli Póllands 2016 þar sem gengið var Slóvakíumegin eftir erfitt veður í Póllandi göngudagana á undan í september 2017... þriggja tinda ganga á Gran Paradiso, Aigulle du Midi og loks Monte Rosa í Ítalíu og Frakklandi þar sem hverfa þurfti frá tindi Mont Blancs vegna veðurs og 14 manns gengu á sama tíma kringum Mont Bland í einmuna blíðu í viku í júní 2017... og loks rjómablíðar göngur á sex eldfjallaeyjum í átta daga ferð um Sikiley og eldfjallaeyjurnar hennar 15. - 22. september 2019...
Á
stefnuskránni eru m. a. hæstu fjöll ýmissa Evrópulanda, Mont Blanc,
Elbrus, Kilimanjaro, Aconcagua í Argentínu, Mt Fuji í Japan, Mt.
Rainier í BNA, Atlas-fjöllin í Marokkó og ýmsar óþekktari leiðir og
fjöll sem gaman væri að skoða, en hér hefur margt áhrif á valið, m.
a. áhugi klúbbmeðlima.
Þróun... við viljum stöðugt gera betur... Starfsemi Toppfara er í stöðugri þróun með sífelldum lærdómi og aðlögun að aðstæðum og vilja hópsins. Við leggjum mikla áherzlu á að gera þetta sem metnaðarfyllst og höfum nú þegar þróað og breytt mörgu frá upphaflegri áætlun, ekki síst fyrir tilstilli sjónarmiða klúbbmeðlima. Þetta þróunarferli er viðvarandi og því eru sífelldar breytingar í ferlinu og á dagskránni, en við reynum alltaf að hafa púlsinn á hópnum og finna betri eða meira spennandi kosti á öllum sviðum.
Frá upphafi hefur stefnan verið mjög skýr í þá veru að skapa þéttan og metnaðarfullan fjallgönguklúbb sem safnar fjöllum allt árið um kring við allar aðstæður og skapar sjálfum sér og fjallamennskunni á Íslandi ómetanleg verðmæti sem hvergi verða í krónum talin... Við bjóðum öllum sem eru með fjallabakteríuna eins og við, að ganga með okkur allt árið um kring, kanna sífellt ókunnar slóðir, safna nýjum fjöllum, upplifunum og reynslu og skrá spennandi sögu Toppfara með eigin fótum og svitadropum... Allar ábendingar eru vel þegnar varðandi hvaðeina í klúbbunum og þjálfarar eru stöðugt að bregðast við athugasemdum klúbbmeðlima til að halda klúbbnum í hæsta gæðaflokki og sem best að smekk meðlima :-)
|
||
Þjálfarar... við viljum allt fyrir Toppfara gera... Bára Agnes Ketilsdóttir. Menntun: BSc í hjúkrunarfræði frá HÍ 1995; meistaraprófsgráða MA í mannauðsstjórnun frá viðskipta- og hagfræðideild HÍ 2005; einkaþjálfarapróf frá Einkaþjálfaraskóla World Class 2007. Framkvæmdastjóri Toppfarar ehf. Starfandi hjúkrunarfræðingur á Aðgerðasviði Landspítala háskólasjúkrahúsi. Margra ára reynsla af starfi sem hjúkrunarfræðingur á slysa- og bráðamóttöku Landspítalans og ýmsum deildum spítalans auk ýmissa annarra starfa. Margra ára reynsla af markvissum æfingum og keppni í langhlaupum hérlendis sem erlendis og víðtæk reynsla af útivist og fjallgöngum. bara(hjá)toppfarar.is. Örn Gunnarsson. Viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík 2002 og einkaþjálfari frá einkaþjálfaraskóla World Class 2007. Framkvæmdastjóri Arnarseturs, bókhaldsstofu ehf. Margra ára reynsla sem bæði þjálfari og íþróttamaður af markvissum æfingum og keppni í langhlaupum, frjálsum íþróttum og knattspyrnu og víðtæk reynsla af útivist og fjallgöngum. orn(hjá)toppfarar.is.
|
||
Skráning í klúbbinn, greiðslufyrirkomulag og þátttaka - sjá hér. |
Við erum á
toppnum... hvar ert þú? |